miðvikudagur, desember 24, 2003
laugardagur, desember 20, 2003
Jibbí ég var rosalega heppin áðan !!!! Ég var að far í hvolpa hitting upp við Rauðavatn og vantaði bensín, nærri tómur tankur. Ég ákvað að stoppa á Shell bensínstöðinni í Árbænum. Ég er nýbúina að horfa á horror þátt um það hjá Ophru þegar kviknar í bílum þegar verið er að dæla á þá og vandræði með að ná börnunum út úr logandi bílunum. Svo ég ákvað að taka Önnu með mér inn og láta dæla á bílinn fyrir mig en ég er venjulega svo mikill sparigrís að dæli sjálf. Jæja við Anna förum inn og ég ákveð að kaupa kókómjólk handa Önnu. Nú þegar ég ætla svo að fara að borga og drengurinn tekur kortið mitt ýtir á einhvern takka segir "þetta verða ....... nei þetta verður ekki neitt, nema 75 kr. fyrir kókómjólkina, þú vannst hjá okkur ókeypis bensín" Ég fékk semsagt fokdýra bensínið með fullu þjónustunni alveg ókeypis. Kann ég Skeljungi hf. mínar bestu þakkir fyrir það. Ég keyri sem sagt í boði Skeljungs næstu 400 km eða svo.
föstudagur, desember 19, 2003
Samkvæmt þessu hér er ég ekki ein um að eiga kunningja sem hafa sungið blessað jólalagið vitlaust. Reyndar fannst mér hálf óhugnarlegt að lesa þetta blogg því það er svo óhugnarlega líkt mínu bloggi á köflum hún bloggar um ótrúlega líka hluti og ég og svo er hún að fá sér hund líka. Úff úff úff ég sem hélt að ég væri einstök svo kemst ég bara að því að ég hef fengið fjöldaframleiddan bónus heila. Greinilega samt góð reynsla á þeim úr því þeir eru í nýrri modelum, nema mamma hennar og pabbi hafi fengið notaðan á útsölu :-s Hennar eintak hefur að vísu orðið fyrir einhverskonar skemdum í æsku því hún fílar ekki Idolið úff úff hallast að því að hún hafi fengið mánudagsframleiðsluna.
Kíkið svo á þetta það er ýmislegt alveg gjörsamlega óborganlegt að finnahér . Þetta með eldvarnarhátíðina hefur greinilega tröllriðið þjóðfélaginu he he he en ég er ekki viss um að gaurinn á misheyrn hafi "rétta" textann réttan en svo getur verið að ég sé bara með enn eina misheyrnina þetta " er enn barnahátíðin mest" hver veit ekki ég allavega.
Hér koma svo nokkrar misheyrnir af síðunni sem ég vísa í hér að ofan sem mér finnast fyndnastar :
"Alelda", Ný Dönsk
(Frábær þessi ...)
Vitlaus texti:
"Alelda ... sólbrenndur bjáni ...."
Réttur texti:
"Alelda .. sáldrandi prjáli..."
Önnur úr sama lagi .. enda auðvelt að misheyra "sáldrandi prjáli" (hver samdi þetta??)
"Alelda", Ný Dönsk
Vitlaus texti:
"Að elda .. sjálfan sig bjáni""
Réttur texti:
"Alelda .. sáldrandi prjáli..."
"Kirsuber", Ný Dönsk
Vitlaus texti:
"Hvít, hvít Fljótshlíð ...."
Réttur texti:
"Hvít, hvít brjóstin..."
"Fram í heiðanna ró"
(Hrein snilld ...)
Vitlaus texti:
"Fram í heiðanna ró fann ég bólstraðan stól ...."
Réttur texti:
"Fram í heiðanna ró, fann ég bólstað og bjó..."
"Þjóðsöngurinn",
Vitlaus texti:
"... sem tilbiður guð, Sigurgeir ...."
Réttur texti:
"... sem tilbiður guð sinn og deyr...."
"The Night Comes Down", Queen
Vitlaus texti:
"And I get afraid, of losing my weight ...." "vá þetta hefur nú ekki verið vanda mál hjá mér frekar svona öfugt tí hí hí -=G.K.=- "
Réttur texti:
"And I get afraid, of losing my way..."
Tekið af : http://www.itn.is/~mani/fun/misheyrn/misheyrn.htm
Jæja bónusheilinn er farinn að heimta hvíld, ohh þetta með bónusheilann útskýrir svo sem ýmislegt sem ég hef verið að velta fyrir mér í gegnum tíðina.
Kíkið svo á þetta það er ýmislegt alveg gjörsamlega óborganlegt að finna

fimmtudagur, desember 18, 2003
Jólastússið hefur tekið allan minn tíma fram til þessa og mun sennilega gera eithvað áfram og því hef ég verið einstaklega ódugleg að blogga. En í staðin er ég búin að skrifa og senda jólakortin, búin að kaupa flest allar jólagjafirnar og er að hugsa um að dunda í einhverju skemtilegu jóladundi á næstunni.
Ég hef að vísu gefið mér tíma til að fara út að labba með Leó við erum búin að finna svo frábæran stað til að labba á en við fórum í morgun og í gærmorgun að Bala sem tilheyrir Garðabæ en er á Álftanesinu rétt sunnan ?? eða suðaustan undir Hrafnistu í Hafnarfirði. Það er mjög gaman að labba þarna og Leó er búin að kynnast 2 frábærum hundum sem þarna koma á sama tíma á morgnana. Trúiði því að ég er farin að fara á fætur á morgnana og mætt með hundinn út kl. 10 og er að skottast þarna út frá í að minnstakosti klukkutíma þetta er rosalega gaman. Hunda vinir Leós eru St. Bernhards tíkin Brák sem er 6 mánaða en orðin á stærð við vel alin kálf og á eftir að stækka mikið enn. Hún áttar sig greinilega ekkert á hvað hún er orðin stór og á til í ærslalátunum að hlaupa mann niður því það munaði kanski ekki nema 5 cm að hún slyppi framhjá. Svo gerði hún heiðarlega tilraun til að hlaupa í gegnum klofið á mér í morgun það misheppnaðist ansi illa he he he he. Höfuðið á henni er að nálgast að vera í höfuð hæð á Árna (kanski smá ýkjur en ekki miklar). Svo er Labrador tíkin Dimma líka vinkona Leós þarna en hún er orðin 13 ára gömul og það er nú alveg farið að sjást á henni að hún er orðin fullorðin enda bera Leó og Brák mikla virðingu fyrir henni og hlýða henni skilyrðislaust. Í morgun mætti líka Boxer hundurinn Max en hann er 2ja ára þeim Leó samdi strax vel og þeir léku sér saman. Því líkt fjör báða morgnana enda liggur Leó alveg eins og skotinn í gólfinu eins og í gær hann er alveg gersamlega búinn á því enda búin að hlaupa og hlaupa og hopppa og skoppa í rúman klukkutíma stans laust. Við Árni hreyfðum okkur nú ekki alveg jafn mikið og Leó en við náðum amk. góðum hálftíma göngutúr út úr þessu. Árni gerði þau mistök að vera ekki í sokkum í gúmístígvélunum og varð svo kalt að hann fór að skæla. Við drifum okkur því heim og fengum okkur kakó með RJÓMA mmmmmmmmm. Mikið rosalega er gott að hafa svona góða og skemmtilega ástæðu til að hypja sig á fætur og vera komin út að labba svona snemma.

laugardagur, desember 13, 2003
Við Leó lentum í leiðinda atviki sem má lesa nánar um Hér ég skrifa undir nafninu Skottfríður Fjóla.
Var rosalega dugleg á fimtudag og föstudag tók alveg helling til og nú er heimilið farið að minna á mannabústað Jíííha. Ásdís var rosalega dugleg að hjálpa til og lagði virkilega sitt af mörkum ég er svo stolt af henni.
Nú er farið að styttast í að pabbi Ásdísar, Þórhannna og Þórður Freyr bróðir Ásdísar flytji til Danmerkur þau fljúga út 31.des og koma ekki heim aftur fyrr en eftir nokkur ár. Ásdís sér enn sem komið er bara björtu hliðarnar á þessu og sér fyrir sér að geta verið sumarlangt í Odense og finnst það ekki slæmur kostur, skil hana vel það væri sko frábært að geta farið til Danmerkur stóran part úr sumri.
Árni og Anna stungu af til ömmu Höllu og afa Kela og ætla að vera þar í nótt. Upphaflega ætlað Árni bara að far með ömmu en ömmu datt í hug að bjóða Önnu að koma með og það þurfti ekki að bjóða henni það tvisvar. Það heyrðist hratt og örugglega JÁ og svo brunaði sú stutta inn í herbergi að sækja "úlpuna mitt" og svo klæddist hún viðeigandi fatnaði og hvarf á braut með ömmu og Árna.
Við hjónin drifum okkur í jólagjafaleiðangur og varð verulega ágengt nú eru allara mikilvægustu jólagjafirnar fundar svo nú mættu jólin koma á morgun án þess að ég fengi martröð yfir því. Samt eigum við nokkrar gjafir eftir en ekkert stór alvarlegt. Við erum líka búin að kaupa jólafötin á krakkana það eina sem er eftir eru spariskór fyrir Árna annars er allt annað komið í þeirri deildinni, FJÚKKET.
Ég var að vinna í morgun, það var gaman!! Eftir að ég fór að vinna á 12-E kemur fyrir að ég hreinlega nýt þess að fara í vinnuna. Auðvitað eru dagar sem eru alveg skelfilega leiðinlegir en svo eru aðrir dagar sem eru svo mátulegir á allan hátt. Alltaf nóg að gera en verður ekki yfirþyrmandi, samstarfsfólkið hresst og skemtilegt, sjúklingahópurinn geðgóður og jafnvel glaðlyndur þá er nefnilega svo gaman að vera í vinnunni. Ég er að vísu hálf skelfingu lostinn yfir því að það eru yfirvofandi uppsagnir á spítalanum það væri eftir því að þegar maður loks finnur vinnu sem maður nýtur þá missi maður hana vegna þess að jólasveinarnir 64 eða hvað þeir eru nú margir geta ekki unnið vinnuna sína almennilega. Jólagjöfin til starfsmanna LSP frá ríkisstjórninni er smekklega valin að vanda. Fólk sem er svo vitlaust að láta sér velferð náungans varða og velur sér heilbrigðisgeirann sem starfsvettvang á greinilega ekkert betra né fallegra skilið í jólagjöf en óttann við að verða atvinnulaust 1. jan. Mér finnst að sumir ættu hreinlega að skammast sín fyrir ósmekklegar jólagjafir og hvað þá ósmekklegar gjafir sem þeir gefa sama fólkinu ár eftir ár. Hrmpf nú er Guðný REIÐ.
Ég er svo reið að ég er farin að spila Battlefield 1942 og ætla að ímynda mér að óvinirnir séu Dabbi, Dóri og Co. Svo er ég að hugs um að finna upp tölvuleik þar sem maður fær að strjórna ráðherrum, ákvarða launin þeirra og eftirlaun og lífsstíl þeirra á allan hátt.

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)