mánudagur, september 22, 2008

Já hver hefði trúað því..


..að ég ætti eftir að eiga þá ósk heitasta að eiga sjálfskiptan bíl. Þegar við keyptum Prevíuna varð þessi sérstaklega fyrir valinu þar sem hún var beinskipt, sem fæstar Prevíur eru. Núna dauðlangar mig í sjálfskiptan bíl því lati fóturinn nennir bara ekki þessu kúplingarveseni. Einnig langar mig óheyrilega til að búa í húsi á einni hæð, ég hætti mér varla niður í þvottahús því stigin þangað er vægt til orða tekið ekki í uppáhaldi hjá mér þessa dagana. Tröppurnar þrjár sem eru annars vegar upp í stofu og hinsvegar inn í húsið hjá mér duga mér alveg. Annars skil ég nú ekki alveg hvernig mér datt í hug í upphafi að flytja inn í hús með stigum í upphafi þar sem ég hef nú aldrei getað treyst á bífurnar fyrir lausum liðböndum. Enda er ég búin að detta niður allar tröppur og stiga sem tilheyra þessu húsi. Óhreinataus karfan við botnin á kjallarastiganum hefur einu sinni bjargað mér frá stórslysi, ég skoppaði á bakinu niður tröppurnar upp í stofu þegar ég var ófrísk af Árna og hef runnið í hálku og skoppað á rassinum niður tvær af tröppunum hér fyrir utan.

Annars hefur mér verið bent á að vera ekki að kvarta þetta undan því að detta niður tröppur því þetta spari jú tíma maður er svo mikið fljótari niður stigann svona.



Ég og tröppur höfum sem sagt ekki átt samleið en hallærislegasta tröppusagan mín er nú samt úr Bíóhöllinni þegar ég var á táningsárunum hafði farið á klósettið uppi og var á leiðinni niður að sal þrjú, komst niður stóra stigan slysalaust ,þar sem ég hitti vinina sem höfðu passað poppið og kókið meðan ég brá mér frá, en þegar ég steig svo niður í eina af þremur tröppunum sem lágu niður að salnum var fóturinnn bara ekki til staðar svo ég endasteyptist fram fyrir mig í fínan kollhnís og endaði með stímabraki og látum á bakinu fyrir neðan tröppurnar. Þetta vakti náttúrlega athygli allra sem á staðnum voru og dyraverðirnir komu hlaupandi til að athuga hvort ég væri í heilu lagi sem ég auvitað var og mér hafið tekist að bjarga kókinu en poppinu var vel dreift um allt nágrennið. Ég hélt ég myndi hrökkva uppaf úr táningahjámérferð að vera sextán ára og taka svona flugferð fyrir framan fullt af fólki var nú ekkert sérstaklega gaman. Annars er þetta nú ekki í eina skiptið sem ég hef legið marflöt í Bíóhöllinni þökk sé lausu liðböndunum eithvert sinn ekki löngu eftir þessa fyrr nefndu flugferðina fór ég með vinum mínum í bíó og í hléinu ætluðum við fram nema ég þarf að skáskjótast framhjá dreng sem sat við endan á bekknum, gefur árans fóturinn sig ekki svo ég ligg marflöt framan við drenginn ...og félagi minn sem gat aldrei látið kyrrt liggja að vera fyndinn hrópar upp yfir sig " Ha ha það er bara svona þú bara fellur kylliflöt fyrir honum", þetta var nú alveg nógu vandræðalegt þó svo hann hefði nú ekki þurft að vekja athygli allra bíógestanna á þessu.

Annars er ekki mikið héðan að frétta krakkarnir eru í skólanum og gengur vel. Árna tókst að vísu að slasa sig í leiktæki á skólalóðinni fyrir tæpri viku síðan og er ekki orðin aflveg góður eftir það enþá. Þetta árans leiktæki ætti að vera búið að fjarlægja fyrir lifandis löngu þar sem sonur minn er nú ekki sá fyristi til að slasa sig þarna og væntanlega ekki sá síðasti.
Ásdís var svo heima í dag með gubbupest og ætla ég rétt að vona að sú óáran láti okkur hin vera !!

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

hehhehe... tröppur! Minnist margra tröppuflugferða. Það er svo bráðnauðsynlegt að eiga góða "fulla" óhreinatauskörfu. Eina skiptið sem ég meiddi mig við að fljúga niður stigann á Borgarholtsbrautinni var þegar mamma hafði "klárað" þvottinn og karfann var tóm.
Tekur Guðni ekki bara við þvottamálunum?

jeg sagði...

Ohhhh hvað það er gott að vera á einni hæð. En þarf samt að príla uppá loft af og til en þar sem ég príla varlega þá sleppur þetta og nú framvegis þarf ég að príla upp því kallinn má og getur það ekki.
Óhreinatauskarfa já ég er með nokkrar og þær eru alltaf frekar fullar og ef þær eru tómar fyllast þær fljótt blessaðar en eru á þannig stöðum að það er ekki hægt að detta ofan í þær.
Knús úr sveitinni þar sem kallinn datt....... ekki í þvottakörfuna.

Nafnlaus sagði...

[u][b]Xrumer[/b][/u]

[b]Xrumer SEO Professionals

As Xrumer experts, we possess been using [url=http://www.xrumer-seo.com]Xrumer[/url] fitted a sustained time for the time being and remember how to harness the titanic power of Xrumer and turn it into a Cash machine.

We also yield the cheapest prices on the market. Assorted competitors will expect 2x or consistent 3x and a end of the time 5x what we charge you. But we maintain in providing great service at a low affordable rate. The large something of purchasing Xrumer blasts is because it is a cheaper variant to buying Xrumer. So we focusing to support that bit in mind and afford you with the cheapest censure possible.

Not solitary do we be suffering with the greatest prices but our turnaround time payment your Xrumer posting is wonderful fast. We drive pull someone's leg your posting done in the forefront you distinguish it.

We also cater you with a roundish log of well-heeled posts on manifold forums. So that you can catch a glimpse of for yourself the power of Xrumer and how we hold harnessed it to help your site.[/b]


[b]Search Engine Optimization

Using Xrumer you can trust to see thousands upon thousands of backlinks in behalf of your site. Many of the forums that your Location you intent be posted on bear great PageRank. Having your association on these sites can categorically help found up some top quality endorse links and as a matter of fact as well your Alexa Rating and Google PageRank rating utterly the roof.

This is making your instal more and more popular. And with this developing in reputation as superbly as PageRank you can expect to lead your area absolutely rank gamy in those Search Mechanism Results.
Conveyance

The amount of traffic that can be obtained nearby harnessing the power of Xrumer is enormous. You are publishing your locality to tens of thousands of forums. With our higher packages you may equivalent be publishing your site to HUNDREDS of THOUSANDS of forums. Visualize 1 post on a popular forum last will and testament by rig out 1000 or so views, with communicate 100 of those people visiting your site. Modern devise tens of thousands of posts on in demand forums all getting 1000 views each. Your traffic will associate because of the roof.

These are all targeted visitors that are interested or curious in the matter of your site. Envision how divers sales or leads you can succeed in with this considerable loads of targeted visitors. You are literally stumbling upon a goldmine friendly to be picked and profited from.

Reminisce over, Traffic is Money.
[/b]

GET YOUR INFERIOR ERUPTION TODAY:


http://www.xrumer-seo.com

Nafnlaus sagði...

Predilection casinos? countersign this environmental [url=http://www.realcazinoz.com]casino[/url] shun and feigning evasively online casino games like slots, blackjack, roulette, baccarat and more at www.realcazinoz.com .
you can also gash into our untrained [url=http://freecasinogames2010.webs.com]casino[/url] control at http://freecasinogames2010.webs.com and fructify in resultant folding shin-plasters !
another voguish [url=http://www.ttittancasino.com]casino spiele[/url] emigrate is www.ttittancasino.com , in the performance of german gamblers, heir in eleemosynary online casino bonus.