fimmtudagur, júní 26, 2008


Wow


Ég hefði átt að hafa meira fyrir að kvíða fyrir þessarí ástungu .... Ég ætla nú ekki að segja að þetta hafi verið notalegt eða nokkuð í þá áttina en það er alveg ástæðulaust að missa svefn úr kvíða fyrir þessu. Ég hef farið í verri ferðir til tannlæknis.
Nú á ég að hafa mig hæga í dag og á morgun og þá get ég nú kanski farið að njóta sumarfrísrestar án yfirvofandi ransókna og læknaferða. Ég vona svo að ég fari að verða ökuhæf fljótlega ég er orðin dáldið leið á að vera upp á aðra komin með ferðalög.


miðvikudagur, júní 25, 2008

Ojjjj...

Er að fara í síðustu rannsóknirnar á eftir segulómun fyrst og svo hina marg umtöluðu mænuástungu.....mér verður óglatt úr kvíða bara vð að skrifa þetta :s Ég vaknaði með kvíðahnút í maganum kl.5:24 og aftur kl.5:44 og enn einusinni kl.6 og aftur kl.6:30 þá gafst ég upp og fór á fætur.
Ég er samt að reyna að hugga mig við hvað það verður gott þegar þetta er búið og ég þarf ekki að hafa þetta hangandi yfir hausnum lengur. Ég þarf að liggja í klukkutíma hjá þeima á tauginni og svo fæ ég að fara heim og liggja þar það sem eftir er dags. Annar bjartur punktur er að ég á að vera dugleg að drekka koffein drykki s.s. kaffi og kók eftir ástunguna ....ef þetta hittir ekki í mark þá veit ég ekki hvað ;)

Þið sendið kanski hlýjar hugsanir til mín milli 10 og 11 á eftir ........

þriðjudagur, júní 24, 2008


Haldgóður haldari


Sumir brjóstahaldarar nýtast einfaldlega betur en aðrir !! Held hreinlega að þeir ættu að vera staðalbúnaður við fjallgöngur.
Frétt á CNN

föstudagur, júní 13, 2008

13.....

Jæja er ekki kominn tími í smá fréttir.
Það verður að segjast eins og er að ég er alvarlega farin að velta fyrir mér að skippa þessu ári bara í heild sinni og panta að fá 2009 snöggvast.

Best að byrja samt á góðu fréttunum en þær eru að ég er betri í auganu og sterameðferðin fór betur í mig en ég hefði þorað að vona. Samt misskildi kerfið í mér þetta eithvað því mér var sagt að maður gæti orðið ör af sterunum og ég var þess vegna send heim með svefntöflur svo ég gæti nú örugglega sofið. Ég tók nú aldrei svefntöflurnar því sterarnir höfðu þau árhrif á mig að ég varð ÖRþreytt og svaf bara út í eitt. Ég var svo útslegin að ég treysti mér ekki af stað eftir sterana á laugardaginn og við fórum ekki upp í bústað fyrr en seinnipartinn á sunnudag. Ég sat svo bara eins og prinsessan á bauninni og familian sá um að pakka,versla,bera og draga. Við komum svo upp í bústað og ég valt útaf í sófanum um leið og ég kom uppeftir. Ég svaf svo meira og minna af mér mánudaginn en á þriðjudaginn fór ég að hressast og við skruppum í leiðangur í Borgarnes. Á miðvikudeginum þóttist ég nokkuð brött og við skruppum í bíltúr í góðaveðrinu og keyrðum áleiðis inn Kaldadal og hann stóð sko ekki undir nafni því hitamælirinn fór í 26 gráður. En þegar við vorum búin að keyra í einn og hálfan tíma fór mælirinn að fara niður aftur og endaði í 17 gráðum. Við snérum þá við og héldum heim á leið. Ég reyndi aðeins fyrir mér í myndatökum og þakkaði mínum sæla fyrir Live View fidusinn á vélinni því ég á ekki séns á að taka myndir með því að horfa í gegnum view finderinn á vélinni. Ég er vonlaus í að nota vinstra augað í það og hægra er bara ekki alveg nógu með á nótunum enþá. Ferðalagið í tók í heild sinni 3 tíma og það var bara aðeins of mikið ég var búin á því þegar við komum heim í bústað og ég gerði ekki meira þann daginn. Í gær tókum við því svo rólega og nutum veðurblíðunnar og slökuðum á.
Í morgun þreif familían svo bústaðinn hátt og lágt og við lögðum svo af stað um 11 leytið úr Húsafelli. Komum við í Skorradal að athuga með fjölskyldubústaðinn þar.

Nú svo lá leiðin barasta heim á leið og átti bara að stoppa á Leirum til að sækja Leó sem dvaldi í góðu yfirlæti á hundahótelinu þar. Þetta plan breyttist aðeins þegar við nálguðumst Grundarhverfið á Kjalarnesinu því þar urðum við fyri því óláni að það keyrði bíll í veg fyrir okkur. Það varð okkur og fólkinu í hinum bílnum til lífs að við vorum á löglegum hraða,bremsurnar á Prevíunni voru í góðu lagi og að Guðni var fljótur að hugsa og náið að bjarga því sem bjargað varð. Ef við hefðum verið á aðeins meiri ferð hefð sennilega ekki þurft að búa um sárin hjá farþegunum í hinum bílnum. Hinn bíllinn er illa farin en eins merkilegt og það nú er sést varla á Prevíunni. Frambrettið vinstra megin er beyglað og það heyrist GOINK þegar maður opnar og lokar bílstjóra hurðinni, glerið á framljósinu er rispaði í spað og stuðarinn er rispaður og aðeins brotinn. Við Ásdís erum aðeins aumar undan beltunum en aðrir sluppu án líkamlegra áverka en sálin hjá yngstu 2 fjölskyldu meðlimunum var aðeins marin en jafnaði sig fljótt.
Í hinum bílnum slasaðist engin en hurðirnar og buðrarbitin á milli þeirra lágu utan í bílstjóranum og hann fann fyrir smá eymslum en honum var ansi illa brugðið . Hann hafði verið að bíða eftir bróður sínum sem var að koma frá Reykjavík og þeir ætluðu svo að verða samferða norður á Akureyri. Hann sá bróður sinn koma og keyrði af stað til að fara á eftir honum en gleymdi alveg að líta til vinstri þegar hann keyrði af stað út á Vesturlandsveginn.
Eftir skýrslugerð og spjall þá héldum aftur af stað heim á leið þakklát fyrir að vera á lífi. Ég fór svo að lesa tjónaskýrsluna á leiðinni og da da ra hvað haldiði ökumenn beggja bíla eru fæddir 13 síns mánaðar og vitiði hvaða dagur er Föstudagurinn 13......og þetta gerðist kl.13:23........þetta er sko allt eitt alsherjar samsæri...Heija Norge.

Klessumyndir má finna á flikcrinu mínu :S

Annars er nú annað merkilegt við daginn í dag við hjónin eigum víst 10 ára brúðkaupsafmæli. Ótrúlegt að það skuli vera orðin 10 ár síðan að sá stórskemtilegi dagur var....man hann eins og hann hefði gerst í gær.

föstudagur, júní 06, 2008

Birna...


Fékk þetta í tölvupósti fannst ástæða til að deila því með ykkur:


Í þessu lífi er ég kona.

Í næsta lífi vil ég verða skógarbjörn.Ef þú ert björn færðu að leggjast í dvala, þú gerir ekkert annað en að sofa í sex mánuði.Ég gæti lifað með því.

Áður en þú leggst í dvala áttu að troða þig út af mat þangað til þú stendur á gati.
Ég gæti líka lifað með því

Ef þú ert kvenkynsbjörn þá fæðirðu ungana þína (sem eru á stærð við hnetur) á meðan þú sefur og þegar þú vaknar ertu komin með stálpuð sjálfbjarga bangsakrútt.
Ég gæti sko alveg lifað með því

Ef þú ert bjarnarmamma þá vita allir að þér er alvara.
Þú abbast upp á þá sem abbast upp á ungana þína og ef ungarnir þínir eru eitthvað óþægir, þá abbastu upp á þá líka.
Ég gæti lifað með þessu

Ef þú ert birna þá BÝST maki þinn við því að þú vaknir urrandi og hann REIKNAR MEÐ því að þú sért loðin á leggjunum og með hátt hlutfall líkamsfitu.

Jebb, ég ætla að verða skógarbjörn!!!

Svo er bara að muna að óska eftir að vera ekki hvítur björn og að álpast alls ekki til Íslands ;)

fimmtudagur, júní 05, 2008

Á taugum...

Það er ekki hægt að kvarta undan þjónustunni hjá Taugadeildinni haldiði ekki að þau hafi hringt í morgun og viljað fá mig í lyfjagjöf. Ég mætti glavösk og fékk hjá þeim sterapúls. Þessa blessaða stera á ég svo að fá á morgun og hinn líka. Ég er búin að semja við læknana um að fresta mænuævintýrinu þangað til í þarnæstu viku svo að þegar ég er búin með sterana þá má ég fara í sumó JIBBÍ.
Ég fór í sjóneithvað mælingu þar sem ég fékk þessar fínu elektróður á hausinn og horfði á tölvuskjá sem blikkaði "skákborði" með punkti í miðju. Þetta tók fljótt af en ekki hef ég hugmynd um hvað þetta mældi eða hvernig það kom út.
Nú á ég bara að taka því rólega og passa að missa mig ekki í sterabrjálæði við að þrífa og ólátast. Ég nýti mér bara að loka betra auganu því þá sé ég ekki draslið og finn vonandi ekki hjá mér þörf til að að þrífa og ólátast. Ekki það að þegar ég minnist á það fæ ég tiltektartitring enda hefur ekki verið gert neitt af viti hér síðan ég veiktist og það sér verulega á heimilinu eftir þriggja vikna óreiðu. En það bíður betri tíma......Svo er ég að láta mig dreyma um að virkja húsbóndann í þetta þegar hann byrjar í sumarfríi á morgun.

miðvikudagur, júní 04, 2008

:s
Já það ætlar ekki að verða endasleppt þetta ævintýri með augað .... Ég fór aftur til augnlæknisins í dag sem sendi mig á taugadeildina Landspítalanum. Þar tók á móti mér ágætis læknir sem lamdi mig og barði, togaði mig og teygði og klikkti svo út með því að hann yrði að gera á mér slatta af rannsónum. Ég var ekki ósátt við það alveg þangað til hann nefndi....... mænuástungu ....hrollur...meiri hrollur og enn meiri hrollur. Ég er alvarlega að hugsa um að stinga af úr landi !!
Annars er það af auganu að frétta að ég er komin niður í 80% sjón (var með 120%) á því sem er nú samt ansi gott miðað við allt. Ég er enn með verkjaseyðing í þessu og hálf lumpuleg. Ég get ekkki gert mikið og verð að leggja mig eftir lítið álag :( Ég er svo að dunda mér við að svekkja mig á því hvort ég komist upp í sumarbústað en við áttum pantaðan IKEA bústaðinn núna frá föstudegi til föstudags. Ég ætti allavega að komast um helgina því ég get ekki ímyndað mér að göngudeild taugadeildarinnar sé opin um helgar. Annars verð ég bara að sætta mig við að slaufa þessu alveg við verðum þá bara að reyna að fá bústaðinn um helgi í haust.

mánudagur, júní 02, 2008


McSteamy, McDreamy og McMillion

þessa skondnu frétt á visi.is um lottóvinnings hafa sem vann litlar 200 miljónir. Eftir dáldin tíma við að eyða peningum var honum farið að leiðast svo mikið að hann fór bara aftur að vinna á McDonalds. Ég gat nú ekki varist þeirri hugsun að ef McDonalds er eini staðurinn sem maðurinn gat fengið vinnu á hefði þá ekki verið málið að drífa sig í nám og bæta atvinnumöguleika sína.Ekki það að það sé neitt að því að vinna á McDonalds sem slíkt, ég get bara ekki alveg ímyndað mér að það sé beilínis eithvað sem maður vill gera að ævistarfi ef maður hefur möguleika á öðru.
Það fylgdi svo féttinni að hann hefði ekki leyst út launaávísanirnar sínar ég hef nú ágæits hugmynd varðandi þær þ.e.s. að gefa andvirðið til góðgerðarmála.