fimmtudagur, janúar 31, 2008

Dreg hneyksl mitt til baka

Þetta var víst bara jók hjá verjandanum Visir úff held að hann hefið samt átt að sleppa því að minna á þetta getur ekki verið skjólstæðingi hans til hagsbóta.
Nei hættiði nú alveg

Ég vissi nú ekki alveg hvort ég ætti að hlæja eða gráta þegar ég last þesa frétt í dag DV
Ef lögin hér eru þannig að það komi til greina að eftirfarandi til refsilækkunar, "þá hetjudáð að sigla skútunni yfir hafið með rifin segl og ónýta talstöð ", þá er mér nú allri lokið. Í mínum augum er þetta ekki hetjudáð heldur meira einbeittur brotavilji eða í besta falli hálfvitagangur.



Annars er lítið að frétta héðan úr sveitinni mér finnst heldur gróft samt að þeir spá 16 stiga frosti á Vífilstaðaveginum á morgun skv. textavarpinu hjá RÚV. Mér finnst nú alvöru sveitastemming yfir því að hafa veðurstöð í næsta nágrenni og vera á sér spásvæði he he he Annars fylgdi fréttinni að það væri spáð 4 metrum á sekúndu á sama stað og því mun frostið jafngilda -21 gráðu takk fyrir.

Krakkarnir fengu einkunnir og umsögn frá skólanum í gær og ekki annað hægt en að vera ánægður með með þau. Meðaleinkuninn hjá Árna er 8,1 sem ég er mjög sátt við.

Ásdís er byrjuð í bóknáminu fyrir skellinöðruprófið og á bara kvöldið í kvöld eftir hún fer svo í verklegar æfingar með hækkandi sól.

Af mér sjálfri er eithvað lítið og ræfilslegt að frétta ég er búin að vera hálf lufsuleg upp á síðkastið en það byrjaði allt með Liljum og endaði með veikindum. Ég er farin að sjá samhengi milli ofnæmiskasta og veikinda það er farið að líta svo út að ef ég fæ slæmt ofnæmiskast þá flippi kerfið bara út og sé viðkvæmara en ella fyrir bakteríum og öðru rusli úr umhverfinu.
Ekki hjálpaði svo til að ég tók vitlausan styrkleika af ofnæmistöflum á mánudaginn sem sló mig út í einn og hálfan sólarhing ég svaf sleitulaust í 17 tíma toppiði það. Ég er svo hrikalegur hænuhaus að það er bara leitun að öðru eins ég býð hreinlega ekki í það ef ég þyrti einhverntímann á alvöru verkjalyfjum að halda þá myndi ég sennilega enda í öndurnarvél af músarskamti :S



Í tilefni af þorranum reyndi ég svo að bjóða vinum mínum í BF2C til landsins í mat og brennivín ég er hálf hneyksluð á þeirri staðreynd að þeir höfðu ekki áhuga. Að vísu var einn þeirra til í að koma en sá kallar ekki allt ömmu sína í matarmálum en hann hefur ferðast víða um heim og m.a. lagt sér til munns sporðdreka og kýrmaga á ferðum sínum um Asíu. Læt fylgja mynd af góðgæti þessa sænska félaga míns.

fimmtudagur, janúar 24, 2008

Deserters storm pt.2

miðvikudagur, janúar 23, 2008

Ha ha ha mæli með þessu !!


Framsóknarfötin

þriðjudagur, janúar 22, 2008

Ojjj

Þetta ætlar nú að verða ljóta vikan ekki nóg með farsann í Reykjavík og foráttu vont veður þá er Heath Ledger farinn yfir móðuna miklu :( Ma ma ma maður á barasta ekki til orð. Hvað verður það næsta maður bara spyr sig.

föstudagur, janúar 18, 2008

Ehh

Maður þarf greinilega að fara að æfa sig á photoshop !! Matijn

þriðjudagur, janúar 15, 2008

Snjó

Skrapp út í göngutúr í dag til að skoða snjóinn og viðra Leó ákvað að taka myndavélina með og af einhverjum áttatíu myndum sem ég tók var bara ein sem ég er ánægð með. Úff ætli það komi einhverntímann að því að maður taki áttatíu myndir og sé ánægður með allar :S

mánudagur, janúar 14, 2008

Já góðan daginn

Eitthvað hafa þeir á Veftíví hjá visi.is klúðrað uppröðuninni á myndböndunum sínum. Núna er búið að eyrnamerkja umræðu um berklasmit á LSH gíslatöku í Venezuela. Ég hélt í smá stund að ég hefði klúðrað líknum eithvað en nei það er Vísir sem er að dr. upp á b. fjúkket. Samt er ég nú pínku svekkt að hafa ekki samstarfsfólkið on demand á tölvunni hjá mér urr..

Guðni átti afmæli áðan og ég missti af því :( Einn af ókostum vaktavinnu er að maður á til að missa af svona dögum *svekk*

Annars er barasta ekkert að frétta héðan ... ætli ég þurfi ekki að druslast í rúmið ég er víst að fara með slektið til tannlæknis á morgun :S

föstudagur, janúar 11, 2008

Vinnufélagarnir

Þó að efni fréttarinnar sé ekki sérlega skemtilegt þá má á myndunum sem fylgja sjá samstarfsfólk mitt. Ritarann, deildarstjórann, hjúkrunarfræðina, býtibúrsstarfsmann,sjúkraliða og starfsmann frá sjúkraþjálfun svo eithvað sé nefnt :) Held að eina tenging þeirra við fréttina sé að þær vinna á LSH veit ekki til að fréttin hafi neina beina tengingu við deildina. Ekki eru allar myndirnar samt af mínu fólki t.s. er lyfjabúrið og birgðageymslan ekki hjá okkur.

Frétt á stöð 2

fimmtudagur, janúar 10, 2008

Vantar þig..

...sæmilega zoomlinsu á myndavélina ?? Þá ættirðu að kíkja á þessa !!

miðvikudagur, janúar 09, 2008

Hjólastelpa




Hér kemur myndin sem ég lofaði :)

þriðjudagur, janúar 08, 2008


Gleðilegt nýtt ár
Elsku snúðarnir mínir gleðilegt nýtt ár og takk fyrir allar heimsóknirnar og kommentin á árinu sem liðið er.

Eithvað er fólk að kvarta undan bloggleysi og það verður að viðurkennast að ég er að hrökkva uppaf úr bloggleti. Ekki veit ég svo sem hvað veldur *hux* Tíminn sem ég hef verið fyrir framan tölvuna upp á síðkastið fer í að þvælast um Second Life með vinum mínum úr BF2C og það er ótrúlega gaman að þvælast um sýndarheim með þessum gaukum. Þetta er svoldið sniðugt þegar fólk getur ekki djammað saman vegna hnattfræðilegrar afstöðu. Þegar ég er ekki í SL þá er ég að keppa í BF2C og þess utan þá er ég bara ekkert í tölvunni. Allur minn tími fer í heimilisstörf, uppeldi og heimanám.

Annars er allt gott að frétta Ásdís er búin að fjárfesta í skellinöðru og núna vantar hana bara námskeið svo að hún geti fengið æfingaleyfi á hjólið. Mikið rosalega hafa skellinöðrur orðið mikið flottari en þegar ég var unglingur. Hjólið sem hún keypti lítur út eins og alvöru mótorhjól og er bara nokkuð cool (myndir síðar). Ég er nú farin að hlakka dáldið til að hún verði sjálfbær með að koma sér í og úr vinnu og slíkt.