fimmtudagur, maí 07, 2009

Jæja

Ekki fer nú mikið fyrir bloggi þessa dagana og hefur það eitthvað að gera með fingradofa og annan í sjóntaugabólgu. Kerfið hjá mér ákvað greinilega að vinstri sjóntauginn væri stórhættulegt fyrirbæri sem þyrfti að lumbra á, svo ég er heldur sjóndöpur á því auga eins og er. Held samt að ég sé heldur að skána. Það verður að viðurkennast að þetta er að verða pínkulítið þreytandi.

Meðan ég er á einu og hálfu auga hef ég verið að dunda mér við að fara í gegnum myndasafnið mitt og tjasla upp á myndir sem þarf ekki mikið að vinna í til að gera frambærilegar. Þegar ég er ekki að því er líklegast að ég finnist steinsofandi einhverstaðar í húsinu eða á facebook.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

humm.. ekki eru þetta góðar fréttir. Nú er bara að láta aðra knúsa þig og sjá svo til hvernig fer.
kv, Guðlaug

jeg sagði...

Knús og kossar úr sveitinni mín kæra. Farðu vel með þig og ....það er að koma sumar og sól :)