miðvikudagur, ágúst 02, 2006

OMG....
..þá er það opinber ég er væluskjóða.. ekki nóg með að ég skæli nánast með ekka yfir Grey´s Anatomy núna er ég farin að tárast yfir Rockstar Supernova.... held ég þurfi að fara að leita mér aðstoðar við þessu.

Vill einhver giska hver á þessi augu og hvað er að .....

A46

Eins og þið giskuðuð á þá eru þetta augun í Önnu en ástæðan var ekki grátur nei ..... að öllum líkindum OFNÆMI. Hún virðist vera að byrja á ferlinu sem Árni byrjaði á þegar hann fór að fá ofnæmisköstin það sem skilur hana frá er að hún er yngri en hann var og þessu fylgdi ekki kláði. Læknirinn sem skoðaði hanan treysi sér ekki til að dæma um hvort þetta væri sýking eða ofnæmi, en roðin var horfinn í morgunnn ásamt stíflaða nefinu sem kom um leið og augnroðinn. Anna sofnaði áður en við náðum að gefa henni augndropana sem hún fékk svo þetta er ólíklega sýking. En Ofnæmið er líklegra þar sem það var búið að vera gott veður og frjókorn og annar ósómi á fullri ferð. Roðinn hefur svo ekkert látið á sér kræla í rigningunni í dag.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Anna á þessi augu og er rauðbólgin eftir að Ásdís fór. Ekki rétt?

Nafnlaus sagði...

Ég held að þetta sé þegar við vorum að fara eftir að hafa skilið Leó eftir á Hundahótelinu, ég mann eftir að Anna fór að hágráta því þetta var svo sorglegt og ég man líka eftir því að mamma fór dróg myndavélina upp þá.

Nafnlaus sagði...

Ég veit , ég veit !!!!!
( en ég má bara ekki segja )

;-)