þriðjudagur, desember 12, 2006

Ekki dauð enn ...

Þó það líti svo út þá er ég ekki alveg dauð úr öllum æðum enn þó bloggið sé hálf lamað eithvað þessa dagana. Ég hef einfaldlega ekki haft tíma til að skrifa neitt. Ég mun heldur ekki skrifa mikið þessa stundina því mér hefur tekist að ná mér í einhverja umgangspest og er að farast úr höfuðverk og hita. Vonandi lifnar yfir netlífi mínu von bráðar.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ég var einmitt að spá í hvað þú ætlaðir að kúra lengi..... :-)

Nafnlaus sagði...

ég vissi að þú værir kúruköttur í eðlinu en að kúra í marga daga og vikur.....

Guðný sagði...

Já en það er gott að kúra :)