miðvikudagur, ágúst 29, 2007

Argh get ekki sofið...


Einhver pestarlurða er að gera mér ókleyft að sofna svo þegar ég ætlaði að brölta fram úr steig ég ofan á inniskóinn minn ( sem mundi greinilega ekkert eftir mér ófétið að tarna note to self hringja í Vörutorg og panta gáfaða inniskó) missteig mig og hélt í smá stund að ég hefði tognað (var næstum farin að skæla úr sársauka) en sem betur fer þá var þetta bara svona hrottalegur sinadráttur. Þetta gerði það að verkum að ég er glaðvökunuð og sit því hér með auman kálfa og fokill út í heimska inniskóinn minn sem átti að muna hve mikil brussa ég er og forða sér. Ofan á það er hver sá sem hélt því fram að sinadráttur væri betri en enginn dráttur ofarlega á hit listanum hjá mér þessa stundina urrrr...



Þar sem ég sit hér alein um miðja nótt fær hundurinn ekki martröð og fer að gelta upp úr svefni mér brá svo að hjartað hoppaði upp í háls. Þegar ég var búin að jafna mig á þessu mátti ég gjöra svo vel og vekja hann, hann var svo ringlaður að hann hljóp í hringjum geltandi :-s Það var nú pínku fyndið að fylgjast með honum þó ég fyndi nú til með honum líka það er svo vont að fá martraðir og vera lengi að ná áttum eftir að maður vaknar.
Kanskii var hann að dreyma þetta ?



Ætti ég að fara aftur inn í rúm og sjá hvort að Vörutorg getur ekki svæft mig úr leiðindum ?? Æi þegar ég hugsa málið betur þá er nú ekki líklegt að ég sofni undir því leiðinda sjónvarps efni er líklegri til að fá grænar bólur og varanlegan kjánahroll.

P.S. eða E.S.
Ef ykkur leiðist rosa mikið og vitið ekkert hvað þið eigið við tíma ykkar að gera þá er hér linkur á slidshow af uppáhalds myndunum mínum á Flickr:
Flickr

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

... ertu grasekja einsog ég? - Eða ertu bara svona sæt að vekja ekki karlinn um miðjar nætur?

Guðný sagði...

Ég fæ nú ekki af mér að hrella kallinn á fætur þegar ég sef illa :)
Þó svo að þessi hugmynd um að láta hann hoppa nokkrar ferðir fram og til baka yfir rúmið hafi verið orðiðin freistandi á tímabli :)