miðvikudagur, september 20, 2006

Jæja

Nú er bara að vona að mínum vandræðum með bloggið sé lokið ég hef verið í endalausum vandræðum með bloggið síðustu vikur. Núna færði ég mig yfir á Bolgging in Beta og þá allt í einu birtist pósturinn sem ég hef verið að reyna að koma inn síðustu daga. Það vantar að vísu alla póstana sem hurfu út í bláinn þar á milli en samt þetta var betra en ekkert.
Af mér er annars lítið að frétta þessa stundina er ég með kvef, hita, höfuðverk og beinverki og er mikið að velta fyrir mér hvort ég verði á fótum á morgun til að komast í vinnuna :S
Ég mun blogga meira síðar ....ef Blogger leyfir sýnist að þetta Beta dót sé mjög sniðugt vonandi virkar það jafn vel og þeir segja.

2 ummæli:

Guðný sagði...

Adam var ekki lengi í paradís ..þetta hætti strax að virka aftur grrrrr

Guðný sagði...

Úff ég get þó amk commentað sem ég hef ekki getað síðustu vikur :( Vona að það hangi amk inni áfram .....Langar svoldið til að öskra úr pirringi.. þegar ég er með hita þá þoli ég ekki svona mótlæti .....