fimmtudagur, desember 06, 2007


Óléttu æði

Ég get svo svarið fyrir það önnur hver kona í mínu nágrenni er ólétt og á að eiga á bilinu mars - júní og ef þær eru ekki óléttar eru þær nýlega búnar. Missti ég af einhverju trendi sem var auglýst eða var eithvað í vatninu á tímabilinu júní -sept ég held ég hafi hreinlega aldrei áður þekkt jafn margar óléttar konur í einu :)
En vissulega er þetta svakalega spennandi og skemmtilegt!

9 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ertu að reyna að segja okkur eitthvað vinkona?

kveðja bílskúrsfelarinn :-)

Guðný sagði...

Nei ég lofa ég er ekki ólétt !!!!! Ég er sko hin hver konan ekki önnur hver :)

Nafnlaus sagði...

hin, önnur hver, hinsum megin, hérna megin og allsmegin :-) ég vildi bara vera viss :-)

Er ekki komið að hittingi.... er manni óhætt að bóka tíma í janúar? (þá er næsti tími hjá mér laus) múhahahahaha

kveðja bílskúrsdrottining að vestan

(þurfti nokkuð nánari kynningu?)

Nafnlaus sagði...

He he nei þekkti þig strax :) Já það væri ráð að bóka tíma fljótlega ...vonandi verður eithvað meira um tíma hjá mér þar sem ég er að minnka við mig vinnu um 10%

Nafnlaus sagði...

.... fáum við nafnalista :) .... væri gaman að vita hverjar eru að unga út núna :) .... þú veist hvað ég er forvitin

Nafnlaus sagði...

p.s
Dilla

Nafnlaus sagði...

Well... af tillitsemi við nokkra aðila og af þeim sökum að þið þekkið ekki megnið af mannskapnum læt ég vera að koma með nafna lista strax en þetta skýrist allt þegar fram líða stundir :)

Nafnlaus sagði...

Ég veit allavega um rosalega margar sem eru í maí líka, þekki þær ekki endilega allar....spurning hvort eitthvað hafi verið í loftinu þarna í ágúst/september?? Vona að ég fái allavega stofu á fæðingardeildinni :-/

Nafnlaus sagði...

Já úff það gæti orðið þétt setinn bekkurinn þarna í maí !!
Þær eru nú svo flinkar þarna á fæðingarganginum að þær redda nú örugglega plássi fyrir þig :D