mánudagur, apríl 09, 2007

Fire,water,BURN

Jæja ég gafst loks upp fyrir verkjum og vanlíðan og ákvað að fara til læknis *doh* Hefði nú betur gert það strax á föstudaginn. Komst að því að ég er víst með 3ju gráðu burna á bringunni :S Ég fékk alvöru verkjalyf hjá doktornum og sýkingarvarnarkrem til að bera á hreleg heitin.

Ég spurði hann hvort hann myndi skrifa út vottorð fyrir vinnu hjá mér en hann leit á mig þungur á brún og sagði "vitum við nú nokkuð hvenær þú ferð í vinnu aftur talaðu við heimilislækninn þinn þegar þar að kemur" þannig að ég má víst bara hafa mig hæga þangað til mér er batnað :(

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Úff var að lesa um brunann :( Ég brenndi mig bara agnarögn við bakstur núna um páskana en sjitt hvað það var voooont - lengi. Sársaukinn nísti inn að beini og samt var þetta bara smotterí, þannig að þú átt samúð mína alla núna :( Gangi þér vel!

Guðný sagði...

Takk takk :) Og já þetta er ótrúlega vont :(