föstudagur, nóvember 07, 2003

Idol kvöldi í kvöld opið hús allir vinir og vandamenn velkomnir !!!
Annars er lítið að frétta héðan ég er einfaldlega að leggjast í kör úr leti hef ekki einusinni nennt að blogga. Hef að vísu kúrt fyrir framan tölvuna að spila Battlefield 1942 mér til ánægju og yndisauka.
Bráðavaktarblogg vikunnar kemur vonandi fljótlega.
Farin að hrista af mér letina VONANDI og ganga frá inkaupagóssinu úr Bónus :-( Ég er að vísu spennt að smakka eitt sem ég keypti í Bónus en það eru Djúpur hef aldrei smakkað þá dásemd og vissi ekki einusinni að þetta var til fyrr en ég fór að lesa bloggið hennar Brynju frænku. En hún talar mikið um Djúpur á blogginu svo þett hlýtur að vera rosalega gott.

Engin ummæli: