fimmtudagur, nóvember 18, 2004

This Love ........

Það er greinilegt að Singstar æðið hér lætur engann ósnortinn. Anna var alveg óborganlega sæt þar sem hún sat á gólfinu að kubba og söng til skiptis Hungry like a wolf og This Love. Auðvitað söng hún þetta með sínum eigin texta en iss lov .... og ungry lik vollf..... er nú bara ferlega krúttlegt og síst verra en frumtextinn. Árni gengur um syngjandi hástöfum Build me up buttercup og er nú bara orðin nokkuð góður í því :) Ásdís lætur nú ekkert í sér heyra nema fyrir framan imbann en þar er hún líka orðin efst á lista og ég rétt næ að teygja tærnar þar sem hún hefur hælana. Árna fer fram með hverjum deginum og verður kominn fram úr mér áður en ég veit af. Ergilegt þegar börnin manns toppa mann alltaf he he he hvað þá í svona gömlum slögurum sem ég söng á þeirra aldri. Bjarti punkturinn er nú samt sá að börnin mín eru þá væntanlega betri framleiðsla en ég svo ég má vel við una að hafa getað betrum bætt þessa fullkomnun sem ég nú annars er ;)

Engin ummæli: