miðvikudagur, janúar 18, 2006

Easy smeasy

Þetta var nú auðveldara en ég hélt og ég fann loks stað fyrir nýja uppáhalds litinn minn. Ég hef verið með eplagrænan á heilanum síðustu mánuði og hélt að það væri kanski bara svona tímabil sem myndi líða hjá en nei það hefur ágerst ferkar en hitt. Mig hefur dauðlangað til að mála einhvern hluta íbúðarinnar í þessum lit en húsbóndinn hefur ekki tekið neitt sérlega vel í það *andvarp* En hér er hann kominn og mun því bara angra lesendur þessa blessaða bloggs. Vona bara að þetta fæli ykkur ekki endalega burtu.

Ég færði mig svo yfir í standard blogger commentakerfið því Haloscan hefur verið með leiðindi við mig síðustu vikur. Tolvan hjá mér neitar ansi oft að opna haloscan gluggana á mínu og öðrum bloggum svo ég nenni þessu ekki lengur á míns egin bloggi. Sjáum hverngi þetta kemur út.

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Þetta er rosa flott! Til hamingju :)

Guðný sagði...

Takk takk *roðn*

Nafnlaus sagði...

til hamingju með þetta- grænt er gott - kem í heimsókn bráðum í næstum því alveg svona græna bolnum sem ég var að kaupa rétt áðan

Guðný sagði...

Vá ég bíð spennt :)

Nafnlaus sagði...

Flottur litur :)

Katrín