mánudagur, september 03, 2007


Argh ..

Þá er seinni hlutinn af sumarfríinu mínu búinn og vinnan tekur við á morgun. Ég hef ekki komið nándar nærri öllu í verk sem ég ætlaði :( Ástæðurnar eru 2 fyrri vikuna sá bakið á mér til þess að ég gerði ekkert af viti og þá seinni er ég búin að vera að berjast við umgangspest :s Að vissu leyti er ég fegin að hafa ekki verið í vinnu síðustu vikur því ég hefði ekki getað unnið alla bakveiki vikuna. Pestin sem ég er með hefði séð mér fyrir veikinda dögum í seinni vikunni líka og enþá svo kvefuð og asnaleg að ég er varla vinnufær og neitaði því aukavakt í dag ....hefði nú alveg getað notað aurinn.

Ég fór á Flataskólahátíðina sem haldin var í gær en hefði betur haldið mig heima því mér batnaði nú ekki við útstáelsið :( En veðrið var svo gott og þetta voru ekki nema 2 tímar svo ég ákvað að drífa mig í þeirri von um að ég myndi hressast. Krakkarnir voru í essinu sínu og Árni klifraði klifurveggin 4 sinnum enda veit hann fátt skemtilegra en klifurveggi. Hann prufaði þetta fyrst í skemtigarði í Þýskalandi fyrir 3 árum eða svo og hefur verið óstöðvandi síðan má ekki sjá klifurveggi án þess að þurfa að prófa og lætur langar raðir ekki stoppa sig.
Anna fékk andlitsmálun og prófaði að setjast inn í lögreglubíl og kveikja á ljósunum og prófa kallkerfið í bílnum kom út brosandi hringinn. Lögregluþjónninn sem sýndi henni bílinn var líka einkar viðfeldinn og var greinilega í essinu sínu við að umgangast börn og náði þvílíkt vel til þeirra að feimnustu börn eins og Anna gleymdu feimninni fljótt.

Jæja best að skella sér í frekari pestarfælingar ... felur í sér ógeðsdrykkinn margrómaða (sítrónute,hvítlauk, engifer og hungang) og nánast bað uppúr Thieves og Purification kjarnaolíum. Verst að hvítlaukslyktinn af manni er nú ekki vinsæl en lyktina af olíunum bætir það aðeins upp. Krakkarnir eru reyndar hrifin af lyktinni af Thieves sem lyktar eins og piparkökur svo ég má þakka fyrir að verða ekki étin þegar ég fer framhjá þeim.


2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ertu í sjálfspíningarmeðferð? ógeðsdrykkur, jakk

Nafnlaus sagði...

He he já ...enda segja þeir með illu skal illt út reka ...verst er að mér á það til að verða illt í maganum af ógeðsdrykknum en sýklunum verður yfirleytt meira illt en mér og flýja staðinn ....skyldi nokkurn undra :s