föstudagur, júní 06, 2008

Birna...


Fékk þetta í tölvupósti fannst ástæða til að deila því með ykkur:


Í þessu lífi er ég kona.

Í næsta lífi vil ég verða skógarbjörn.Ef þú ert björn færðu að leggjast í dvala, þú gerir ekkert annað en að sofa í sex mánuði.Ég gæti lifað með því.

Áður en þú leggst í dvala áttu að troða þig út af mat þangað til þú stendur á gati.
Ég gæti líka lifað með því

Ef þú ert kvenkynsbjörn þá fæðirðu ungana þína (sem eru á stærð við hnetur) á meðan þú sefur og þegar þú vaknar ertu komin með stálpuð sjálfbjarga bangsakrútt.
Ég gæti sko alveg lifað með því

Ef þú ert bjarnarmamma þá vita allir að þér er alvara.
Þú abbast upp á þá sem abbast upp á ungana þína og ef ungarnir þínir eru eitthvað óþægir, þá abbastu upp á þá líka.
Ég gæti lifað með þessu

Ef þú ert birna þá BÝST maki þinn við því að þú vaknir urrandi og hann REIKNAR MEÐ því að þú sért loðin á leggjunum og með hátt hlutfall líkamsfitu.

Jebb, ég ætla að verða skógarbjörn!!!

Svo er bara að muna að óska eftir að vera ekki hvítur björn og að álpast alls ekki til Íslands ;)

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

hehehe, það besta sem ég hef séð í lengri tíma......

jamm, það er slæmt að mæta óboðinn í partý.

Nafnlaus sagði...

Bíddu nú við.... afhverju ert þú vöknuð á þessum ókristilega tíma?

Nafnlaus sagði...

He he var að fara í steragjöf var vöknuð nógu snemma til að blogga smá :)

Nafnlaus sagði...

ha ha ha bjargaði deginum
Dilla