miðvikudagur, júní 25, 2008

Ojjjj...

Er að fara í síðustu rannsóknirnar á eftir segulómun fyrst og svo hina marg umtöluðu mænuástungu.....mér verður óglatt úr kvíða bara vð að skrifa þetta :s Ég vaknaði með kvíðahnút í maganum kl.5:24 og aftur kl.5:44 og enn einusinni kl.6 og aftur kl.6:30 þá gafst ég upp og fór á fætur.
Ég er samt að reyna að hugga mig við hvað það verður gott þegar þetta er búið og ég þarf ekki að hafa þetta hangandi yfir hausnum lengur. Ég þarf að liggja í klukkutíma hjá þeima á tauginni og svo fæ ég að fara heim og liggja þar það sem eftir er dags. Annar bjartur punktur er að ég á að vera dugleg að drekka koffein drykki s.s. kaffi og kók eftir ástunguna ....ef þetta hittir ekki í mark þá veit ég ekki hvað ;)

Þið sendið kanski hlýjar hugsanir til mín milli 10 og 11 á eftir ........

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Gangi þér vel.... ég fæ mér kók-glas þér til samlætis!!