mánudagur, apríl 03, 2006


Betra en Eurovision ;)

Þá liggja úrslitin fyrir og myndin mín náði 14 sæti af 32. Ég er MJÖG sátt við þann árangur sérstaklega þar sem það var mikið af alveg fantagóðum myndum í þessari kepni. Allar myndirnar sem ég var ekki að fíla lentu fyrir neðan mína svo ég er líka sátt með það he he he ... Mér kom líka á óvart að nokkrar myndir sem mér fundust alveg frábærar lentu fyrir neðan mig Myndin sem vann og myndirnar 3,4 og 5 sæti voru í miklu uppáhaldi hjá mér. Ég fékk mjög sanngjarna og fína gagrýni á myndina og var hæstánægð með það að ég fékk mjög jákvæða dóma frá fólki sem mér finnst mikið til koma. Ég vissi uppá mig sökina í að brjóta allar helstu myndbyggingarreglur svo ég var nú bara sátt með að ekki var hraunað algerlega yfir mig útaf því.

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Frábært til hamingju :o)

Guðný sagði...

Takk takk :)

Skonsa sagði...

Til hamingju með árangurinn :) Æfingin skapar meistarann!!

Nafnlaus sagði...

til hamingju

Nafnlaus sagði...

er einhvers staðar hægt að sjá þessar myndir?