miðvikudagur, mars 28, 2007


Þungu fargi..

...er af mér létt ég er búin að vera nálægt því að fá slag útaf fermingarundirbúningi en núna er búið að ganga frá flestu því sem máli skiptir. Ég var að enda við að semja við vel ættaðann matreiðslumann um að elda fyrir okkur og það er sko ekkert smá girnilegur matseðillinn hjá honum. Ég er búin að panta myndatökuna,salinn, prufugreiðslu,aðal fermingargreiðsuna og síðast en alls ekki síst kransakökurnar :) Nú á eftir að fata gelluna upp og klára að ganga frá litaþema og stíl á veislunni og þá er þetta að verða afgreitt og ég get hætt við að fá slag :)

P.S. Ólafía er hægt að blikka þig með fermingarförðun 29.apríl ??

4 ummæli:

Skonsa sagði...

Ohhh...en svekkjandi! Ég mun líklega yfirgefa Frón þann 28. apríl :( Það hefði verið svooo gaman að farða hana.
Æi....*snökt*

Nafnlaus sagði...

Jæja þá nær það ekki lengra :) Hvert er eiginlega verið að fara ??

Nafnlaus sagði...

Minn heittelskaði ætlar að bjóða mér með sér til Minneapolis :) Hann segir að þetta eigi að vera afslöppunarferð en ekki verslunarferð...*flaut*

Nafnlaus sagði...

En æðislegt :) Er ekki afslöppun að versla ?? **blístra smá og læt mig hverfa hljóðleg áður en Bjössi grýtir mig með næsta lauslega hlut.. he he he he **