föstudagur, október 13, 2006

Ammæli
Ég á afmæli í dag,
ég á afmælí dag.
Ég á afmæli sjálf,
ég á afmælí dag.

Jamm þá er enn einn afmælisdagurinn runnin upp og ekkert nema gott um það að segja:) Ekki verður þó neitt úr afmælisuppáhaldi hér á bæ enda allir á kafi í vinnu ég á að vísu frí á morgun en verð að vinna alla helgina.
Guðni greyið hefur ekki sést hérna heima síðustu vikur og er ekki kominn heim þegar þessi orð eru skrifuð. Ég á ekki von á að hann verði sýnilegur hér á næstunni heldur. Anna grætur fögrum tárum á hverju kvöldi núna og vill fá pabba. í gærkvöldi horfði hún á mig tárvotum augum og spurði "hann kemur aftur er það ekki "

3 ummæli:

Skonsa sagði...

Innilega til hamingju með afmælið Guðný mín! :-D Vonandi endurheimtið þið eiginmanninn og fjölskylduföðurinn fyrr en síðar!

Dyrleif sagði...

..hjartanlega til hamingju með afmælið snúlla :) ..... já er verið að innrétta nýja IKEA?? Vonum nú að karlinn skili sér - hann er nú soddan dýrgripur að það væri synd ef hann tapaðist :) ..... Hvað um það snúll - eina ferðina enn til hamingju með daginn..... knus, kram og kys

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með afmælið stelpa.. betra er seint en aldrei ;)