mánudagur, október 13, 2003

Ég var að fá afmælisgjöfina frá fjölskyldunni ég fékk sko viðbætur við bæði Metal of Honor og Battlefield 1942 ég get sko ekki gert upp við mig hvorum ég á að byrja á. Svo fæ ég á föstudaginn nuddteppi með hita og öllu þetta er svona "sessa" til að setja í stól og nuddar svo á manni bakið, axlir og allt. Mig er búið að langa í svona SVOOOO lengi. Ég bíð spennt eftir föstudeginum. Á föstudagskvöldið er stefnan tekin á að sitja á nuddteppinu að spila tölvuleik með hundinn á tánum. Þetta flokkast svona undir að vera allt það sem mig hefur alltaf dreymt um. Gæti hugsanlega orðið einn lang besti dagur ævi minnar.
Vá ekki það að maður sé með neinar væntingar ***ehh***

Engin ummæli: