mánudagur, október 13, 2003

Vá það var að kvikna á perunni ég á víst afmæli í dag. Takk allir sem hafa óskað mér til hamingju :-). Dísa systir velti upp þeirri spurningu hvort þetta væri 13 eða 31 árs afmælið rauntíminn er víst 31 ár en andlegur þroski stoppaði víst í 13 árum þar sem ég lét ekki fermast. Eins og allir vita er fermingin m.a. vígsla inn í fullorðins árin svo ég verði víst aldrei fullorðin. Annað merki um barnaskap minn er það að ég kann ekki að drekka kaffi sem veldur mér umtalsverðri félagslegri fötlun í umgengni minni við fullorðið fólk.

Engin ummæli: