laugardagur, október 04, 2003

Jæja þá er þetta að hafast hjá mér þ.e.s að koma blogginu áleiðis í það horf sem mig langar að hafa það margt ógert enn en það kemur síðar.
Nú er víst kominn tími á að skella sér í matarboð til Guðlaugar og Helga en þau voru svo rausnarleg að bjóða okkur til sín í kvöld. Smá sárabætur fyrir það að við komumst ekki í Húsafell með Palla, Gullu og dætrum. En þau höfðu boðið okkur að dveljast í hinum frábæra IKEA bústað með sér um helgina. En vegna nýjasta fjölskyldumeðlimsins áttum við ekki heimangengt. Leó er víst ekki velkominn í bústaðinn og við getum ekki skilið hann eftir einan heima greyið og hann er of ungur til að fara á hótel. * Sniff sniff* Að vísu finnst mér þetta alveg þess virði eftir að hafa dreymt um það í 22 ár að eignast hund þá er ég nú alveg til í að fórna ýmsu fyrir hann.
Vá hvað textinn getur farið í mikið pikkles hér á þessu bloggi !!! Ætlaði að reyna að laga þetta en gafst upp hvað er eiginlega í gangi hér ?? �slensku stafirnir eiga það til að detta alveg út í hluta eða öllu Blogginu, er ekki alveg að fatta þetta.

Engin ummæli: