laugardagur, október 04, 2003

Vá ég er að prófa að blogga í fyrsta sinn. Mér finnst svo rosalega gaman að lesa annara manna blogg að ég varð að prófa líka. Það er ekki endilega svo að ég hafi neitt skemmtilegt né fróðlegt til málann að leggja en hér er kanski rétti vettvangurinn fyrir munnræpusjúkling eins og mig að láta móðann mása. Mér varð nefnilega ljóst að hér er hægt að raupa og rausa án þess að nokkur geti gripið frammí eða neitt og svo er fólki alveg frjálst hvort það les þetta eða ekki Jibbí.

Engin ummæli: